26.5.2008 | 21:42
mælt er með...
-göngu upp að Svartafossi í sól og sumar/vor-blíðu. fátt er fegurra.
-sumarsalati. fátt er betra. og þó... spaghettíið sem ég var rétt í þessu að láta oní mig var eiginlega betra, amk núna, enda mun sveittara. ég þurfti á því að halda. í sumar/vor-blíðu blífar svo salatið.
-nýjum heimavelli Vals að Hlíðarenda. þar má upplifa góða stemmningu og dást að heitum knattspyrnumönnum. svo bjóða þessi íslensku lið stundum upp á einhver tilþrif en það má líka alveg sjá þau bara í garðinum heima á hörpó eða í löngu frímínútum á þriðjudögum út í grandó.
-Cosmopolitan, í hófi. ég get því miður ekki gefið uppskriftina mína þar sem mælieiningar eru ekki mín sterkasta hlið.
-vefútgáfum breskra slúðurblaða. Perez Hilton hvað? skrifin á The Daily Mail slá allan sora út, alltaf. í dag las ég t.d. reynslusögu fyrrverandi hjásvæfu Nereidu Gallardo. hún á víst að vera villidýr í rúminu og Cristiano Ronaldo á þ.a.l. að vera "one lucky guy". grill.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2008 | 23:12
í undirbúningi hjá sukie
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2008 | 23:36
kæró um að kenna?
allar speculations um það að ronaldo sé á förum fá nú byr undir báða vængi, ekki aðeins vegna ummæla hans í fjölmiðlum heldur einnig vegna þeirrar ömurlegu staðreyndar að kærastan hans, nereida gallardo, er frá mallorca.
án nokkurs vafa meikar hún ekki grámyglu manchester, er meira svona fyrir sól og sumar, og þar af leiðandi setur hún upp e-ð svona móment: "er það ég eða fótboltinn? spánn eða england?"
langsótt? kannski, en gæti alveg átt sér einhverja stoð í raunveruleikanum.
beygla.
|
Ronaldo: Ræði mína framtíð eftir úrslitaleikinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
27.4.2008 | 23:36
frábærir í fótbolta...
og forkunnarfagrir, þ.e.a.s. sex þeirra sem er meira en helmingur liðsins, ekki svo slæmt, i gotta say.
það vegur upp á móti þeirri ömurlegu staðreynd að arsenal á þarna fleiri menn en united en ég get kannski huggað mig við það að grey púlararnir eru bara tveir...
ótengt þessu: pfa-leikmaður ársins, sá ofurheiti maður, á, skv. öruggum heimildum enskra slúðurblaða, illa heita kærustu. dæmi síðan hver fyrir sig en hún hefur m.a. berað á sér brjóstin fyrir myndatökur heima á mallorca.
|
Fjórir leikmenn Arsenal í liði ársins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
16.4.2008 | 22:36
mæli með...
- málþingi SHÍ á föstudaginn kl. 11 í stofu 101 í H-torgi þar sem m.a. oddviti Vöku mun halda framsögu vegna nýs frumvarps menntamálaráðherra um opinbera háskóla
- kvikmyndinni Los tres entierros de Melquiades Estrada sem Tommy Lee Jones leikstýrir og Guillermo Arriaga á handritið að sem hann fékk einmitt verðlaun fyrir á Cannes 2005
- vorinu, bæði því sem virðist vera að koma á klakann, og líka tónverkinu hans Vivaldi. varð vitni að því í dag í vinnunni hversu róandi áhrif það hefur á 6 ára gömul börn
- knattspyrnu, til iðkunar og/eða áhorfs. ég kýs það síðara og get því varla beðið hvorki eftir maí né júní
- Gufunni, þá aðallega þættinum Orð skulu standa á hverjum laugardegi kl. 16 og svo stökum þætti, Söngvarnir frá Písa, en hann má hlusta á inn á ruv.is. þátturinn var fluttur þann 6. apríl kl. 10:15, tékk it át áður en hann dettur af dagatalinu
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2008 | 22:51
nýdanskur tryllingur
5. Björn Jörundur Friðbjörnsson: Hann hreppir hér seinasta sætið, sem mætti þó alveg eins túlka sem heiðurssæti, þar sem grófur kynþokkinn lekur statt og stöðugt af honum, sérstaklega þar sem hann stendur á sviði með hljómsveit sinni Ný Dönsk. Í seinni tíð (n.t. á seinustu tveimur vikum) hefur hann þó fallið í skuggann af "konunni", eins og óprúttnir einstaklingar hafa kosið að kalla hann.
4. Patrick Dempsey: Ég hef reyndar ekki horft á Grey's Anatomy í langan, langan tíma en þessi maður made my day oft og mörgum sinnum sl. haust, ú je. Heitleiki hans er slíkur að það þarf ekki að fjölyrða mikið um það, ó nei.
3. George Clooney: Ennþá færri orð þarf að hafa um tryllingslegan kynþokka þessa manns. Ef þið þurfið að rifja eitthvað upp sjáið hann þá í Michael Clayton; hann er vægast sagt guðdómlegur.
2. Colin Firth: Sjónvarpsþáttasería BBC eftir hinni mjög svo yndislegu bók Jane Austen, Hroki og hleypidómar, lætur mér bara alltaf líða vel ef ég er feeling eitthvað down. Má þar að miklu leyti auðvitað þakka sögunni sjálfri sem er í alla staði bara feel good en einnig því að Colin Firth fyllir oft og iðulega út í skjáinn. Maður hatar það ekki þar sem kynþokkinn svífur yfir vötnum Derbyshire.
1. Daníel Ágúst Haraldsson: Þetta er sem sagt maðurinn sem óprúttnir einstaklingar, aðallega vinkonur mínar, hafa uppnefnt "konuna". Ég og Vilborg tökum það persónulega þar sem við héldum ekki vatni yfir honum, hvorki á Bítlatónleikunum um þarseinustu helgi eða á Ný Danskar-ballinu á laugardaginn. Ef til vill má deila um heitleika hans á heildina litið þar sem hann hefur kannski ekki alla tíð löðrað í kynþokka en hann löðrar svo sannarlega þessa dagana, a.m.k. á sviði í aðsniðnu kápunni (?) sinni og með Rod Stewart-hair-doið. Daníel Ágúst tekur þetta því í þetta skiptið; ég kemst einfaldlega ekki yfir hann.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2008 | 00:57
illa trylltur tryllingur
það má eyða tímanum í allt annað en að vinna upp í skólanum og klára verkefni, lesa fyrir ba-ritgerð etc. ég eyddi seinasta korterinu t.d. í það að útbúa þennan lista, lesendum þessarar síðu til ánægju og yndisauka.
já, það er sko ekki að spyrja að framtaksseminni á einum bænum... haldiði að það sé?
5. Heath Ledger: Ástralska goðsögnin Heath Ledger hlýtur heiðurssætið að þessu sinni. Fáum orðum þarf að fara um þann þokka sem þessi frábæri leikari bar af sér, megi hann hvíla í friði.
4. Dimitar Berbatov: Þrátt fyrir að liðið hans hafi mátt muna sinn fífil fegurri í ensku úrvalsdeildinni kemur hinn lokkaprúði framherji Tottenham Hotspur sterkur inn í 4. sæti listans. Kynþokkinn bókstaflega lekur af honum inni á vellinum og ekki skemmir fyrir að hann kann alveg að fara með fótbolta. Það getur því verið ágætis skemmtun að horfa á leik með Spurs og alls engin tímasóun þegar þessi ofur-heiti Búlgari mannar framlínuna.
3. Hilmir Snær: Últímat hottí íslensku leikarastéttarinnar enda eldist þetta kyntröll fáránlega vel. Sama hvað hann leikur eða hvar hann kemur er hann alltaf jafn óviðjafnanlegur og alltaf jafnerfitt að hafa af honum augun... eða hendurnar ef maður var á Hverfisbarnum í ofurblekun fyrir fjórum árum, mín kæra vinkona...
2. Adam Levine: Já, við erum að tala um prógramm. Söngvari hljómsveitarinnar Maroon 5 hefur löngum verið þekktur fyrir fallegt fés og almennan (kyn)þokka. Svo mikinn reyndar að ungar stúlkur gætu lent í hremmingum ákveði þær að taka lagið "This Love" í SingStar eins og við Árdís reyndum sl. föstudag. Uppteknari af manninum en laginu og tónunum sungum við alveg hreint skelfilega enda með augun full af stjörnu-hjörtum.
1. Matthew McFadyen: Þennan leikara sá ég fyrst í hinum mjög svo yndislegu þáttum, Spooks. Um daginn horfði ég síðan á myndina Pride and Prejudice í þriðja skiptið og halló, halló! Þá kviknaði á öllum bjöllum og ó mæ, ó mæ, Spooks-ástin mín er Mr. Darcy! Ég skil ekki ennþá hvernig þetta gat farið fram hjá mér í fyrstu tvö skiptin sem ég horfði á myndina en reyndar hef ég það mér til varnar að hann er ansi ólíkur Spooks-karakternum sem Mr. Darcy. Allavega, hann toppar þennan lista þar sem hann er í alla staði ómótstæðilegur og hefur leikið Mr. Darcy, þann dásamlega, dásamlega mann.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2008 | 01:23
martröð
í vinahópnum mínum hef ég löngum verið þekkt fyrir það að fylgjast með ensku knattspyrnunni af ástríðu. einhverjir myndu segja að þessi ástríða væri komin langt út fyrir öll mörk þegar mig er farið að dreyma úrslit leikja og fá martraðir vegna góðs gengis arsenal á leiktíðinni.
þannig var nefnilega að snemma í morgun vaknaði ég upp með andfælum vegna þess að mig dreymdi að arsenal hefði unnið blackburn 2-0. í allan dag kveið ég síðan þessum leik og sá fram á að martröðin yrði ekki að veruleika þar sem staðan var lengst af 1-0. en já, nei, nei. á lokamínútunni skora þeir og martröðin orðin að veruleika...
ég ætla rétt að vona að draumfarir mínar verði ekki með svipuðum hætti fyrir næsta leik arsenal en þeir mæta elsku drengnum og félögum um næstu helgi.
ég myndi þó ekki hata það að dreyma líka fyrir um úrslitin í þeim leik; í því tilfelli kæri ég mig bara ekki um neina martröð heldur aðeins markaregn heimamanna í united.
|
Arsene Wenger: Þetta er engan veginn búið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2008 | 01:15
lífið og elsku drengurinn
ég hef ekki verið að hata seinustu daga en þeir hafa í stuttu máli einkennst af vöku, meiri vöku og svo aðeins meiri vöku. alveg hreint yndislegt en við erum búin að vera að koma okkur fyrir í kosningamiðstöðinni okkar sem er á besta stað í bænum, á miðjum laugaveginum, n.t. á laugavegi 51, 2. hæð.
við fluttum inn um seinustu helgi, daginn eftir trylltustu þrettándagleði sem sögur hafa farið af, og höfum verið að koma okkur fyrir í vikunni. í gær vorum við svo með fáránlega hresst hópeflisdjamm sem endaði í mikilli gleði á celtic þar sem seleb hrundi niður stiga og fólk var vökumerkt í bak og fyrir.
í dag voru síðan stíf fundahöld í mismikilli þynnku viðstaddra en eftir þau kíkti ég til pabba og horfði á leikinn. það var alveg hreint yndislegt líka þar sem elsku drengurinn, eins og hann er gjarnan kallaður, fór á kostum og skoraði þrennu. ekki leiðinlegt ó nei en það var heldur sorglegt að sjá alan smith rekinn út af sínum gamla heimavelli í uppbótartíma. ég felldi líka nokkur tár þegar ég las þessa frétt inn á vísi í kvöld en ætli ég grillist ekki bara aðeins og snúi mér að erkióvininum en hinum mjög svo heita cesc fábregas
annars er þetta allt saman bara almenn gleði, gleði enda leggjast næstu vikur vel í mig sem aldrei fyrr og ég hlakka mikið til baráttunnar sem er framundan... áfram vaka, x-a!
|
Sex mörk og Man.Utd á toppnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2008 | 03:46
loksins
ég hef nú í nokkurn tíma ekki getað sætt mig við að cesc fabregas væri í því að toppa ronaldo í þessari tölfræði. af hverju? hef ekki hugmynd. vonandi er þetta fyrirboði um það sem koma skal: að united hirði toppinn af arsenal í næstu umferð úrvalsdeildarinnar.
tékkið svo á þessu. fáránlega nett!
|
Ronaldo sá besti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



vakafls
helgahaarde
vilby
sigruningibjorg
gudbergur
andriheidar
arnih
reynir
johannalfred
vigdis
konur
vefritid
almapalma
ingo
nonninn
ingolfur